Fréttir

Sýningaropnun á sjómannadaginn: „Til fiskiveiða fóru“ í Bátahúsinu á Byggðasafninu í Görðum.

Á sjómannadeginum 7. júní stendur Byggðasafnið í Görðum fyrir opnun nýrrar og metnaðarfullrar sýningar, „Til fiskiveiða fóru“, í Bátahúsinu á safnasvæðinu. Sýningin varpar ljósi á útgerðarsögu Akraness og Hvalfjarðarsveitar og er öllum bæjarbúum og gestum boðið að taka þátt í þessum tímamótaáfanga.