Takk fyrir komuna!

Útgerðarsýningin ,,Til fiskiveiða fóru'' í Bátahúsi Byggðasafnsins opnaði þann 7. júní síðastliðinn. 

Þar er ljósinu varpað á daglegt líf fólksins sem byggði samfélag þar sem útgerðin var undirstaða allra lifibrauða og nú er Akranes og Hvalfjarðarsveit. Sýningin fylgir þróun útgerðarinnar í gegnum aldir og heimildir benda til þess að fiskveiðar hafi verið stundaðar á svæðinu allt frá landnámsöld og að sjávarútvegur hafi fljótt orðið ráðandi atvinnugrein vegna nálægðar við gjöful fiskimið.

„Til fiskiveiða fóru“ er ekki aðeins sögusýning heldur upplifun þar sem gestir geta skynjað andrúmsloft fortíðarinnar og tengst daglegu lífi fólks sem treysti á sjóinn. Með persónufrásögnum, gripum og rýmisuppsetningu skapast lifandi tenging milli fortíðar og nútíðar.

Opnun sýningarinnar á sjómannadegi var jafnframt táknræn, þar sem hún heiðraði þá sem störfuðu og starfa enn við sjávarútveg, og minnir á mikilvægi þessa arfs fyrir samfélagið í dag. Byggðasafnið þakkar öllum sem að áttu leið um safnasvæðið á opnuninni og minnum á að safnið er opið alla daga frá klukkan 11- 17 fram til 15. september.

Ljósmyndari: Ulf Erik Walter