Litla Kartöfluhátíðin 2025

Byggðasafnið í Görðum býður bæjarbúum á Litlu kartöfluhátíðina í Stúkuhúsinu á safnarsvæðinu þann 13. september, klukkan 14:00.
 
Verkefnið á bakvið hátíðina er einstaklega fallegt og hófst með heimsókn þriðju bekkinga í Brekkubæjarskóla en þau eiga heiðurinn af stórglæsilegum og blómlegum kartöflugarði sem stendur við hliðina á húsinu Söndum á safnasvæðinu. Starfsfólkið á Byggðasafninu tók fagnandi á móti hópnum í maí á þessu ári og verður uppskera núna í september. 
 
Sölvi Björn Sigurðsson rithöfundur les úr bók sinni Gestakomur í Sauðlauksdal.  
 
„Aldurhniginn og blindur snýr Björn Halldórsson á heimaslóðir í Sauðlauksdal með lítilræði af kartöfluútsæði sem Friðrik konungur hefur falið honum að rækta svo landar hans drepist ekki úr sulti. Það er dimmt yfir þjóðinni: mannfellir og kuldatíð, eldgos og bjargarleysi. Mitt í öllum hörmungunum ríkir samt von hjá gömlum bónda um að koma Íslendingum í hóp vel haldinna þjóða. Heillandi saga um mat og hugarheim 18. aldarinnar.“
 
Jarðepla Jói" frá Snartarstöðum verða á svæðinu með ýmislegt gómsætt, þau ætla selja gestum og gangandi, Rauðar íslenskar, Gullauga og Milvu, ásamt næpum.
 
Listakonan Tinna Royal ætlar að bjóða upp á kartöflu konfekt og það verður heitt kaffi á könnunni.
-----------------------------------------------------------------
Þetta er í fjórða sinn sem litla Kartöfluhátíðin er haldin og leggjum við mikla áherslu á að fá til okkar skemmtilega fyrirlesara.
 
2022 Fyrirlestur um kartöfluræktun á Akranesi – Ingibjörg Gestsdóttir þjóðfræðingur
2023 Fyrirlestur um sögu kartöflunnar „Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar“ – Hildur Hákomardóttir myndvefari og rithöfundur
2024 Fyrirlestur um „Hallærið mikla (an Gorta Mór)“ – Helga Einarsdóttir þjóðfræðingur