Árið 2025 setti safnið í sölu hugguleg jólakort og merkimiða sem unnin eru upp úr hátíðlegum safnmunum Byggðasafnins. Í boði eru þrjár útgáfur af jólatrjám og þrjár útgáfur af rugguhestum, sem endurspegla liðna tíma.
Jólakort með umslagi kosta 500 krónur og merkimiðar eru seldir í pakka með sex stykkjum, þar sem allar myndirnar eru saman, á 1.000 krónur.
Allur ágóði af sölu jólavarningsins rennur í barnamenningarverkefni á safninu sem leggja áherslu á fræðslu, leik og sköpun — og hjálpa börnum að tengjast sínum menningararfi á eigin forsendum.
Við hefjum söluna á laugardaginn 28. desember milli 13:00 - 17:00, ef þið óskið þess að kaupa miða utan opnunartíma þá er hægt að hafa samband við safnið milli 09:00-16:00 (mán-fim) og 09:00-12:00 (fös) á netfangi museum@museum.is eða í síma 4331150.
Gestir eru hvattir til að líta við á Byggðasafninu í Görðum, njóta jólastemningarinnar og rifja upp eða kynnast jólum fyrri tíma. Það er ekki ólíklegt að einhver muni rekast á hátíðlega safnmuni í gömlu húsunum á safnasvæðinu sem vekja upp hlýjar minningar úr eigin heimahögum.