ELDFJÖLL OG JARÐSKJÁLFTAR

 
Í Stúkuhúsinu
kl. 14:00 til 16:00 29. október 2022 
 
Á Vökudögum býður Náttúruminjasafn Íslands upp á skemmtilegan eldfjalla- og jarðskjálftaviðburð í samstarfi við Byggðasafnið í Görðum.
 
Við skoðum efni sem koma upp í eldgosum, búum til jarðskjálfta og látum eldfjöll gjósa á 30 mínútna fresti.
 
Tilvalið fyrir fjölskyldur til að tengjast náttúrunni á óvenjulegan og skemmtilegan hátt.
Verið öll velkomin. Aðgangur er ókeypis