Dagskrá Vökudaga á Byggðasafninu

Menningarhátíðin Vökudagar verður sett í kvöld þegar Listagangan fer af stað klukkan 18:00 og stendur til 21:00. Byggðasafnið í Görðum á Akranesi tekur þátt í dagskrá hátíðarinnar og hefur staðið fyrir fjölbreyttu sýningahaldi síðustu ár þar sem saga og samtímalist mætast.

Sérsýningarsalurinn Steypan, sem opnaður var samhliða nýrri grunnsýningu safnsins vorið 2021, hefur hýst margvíslegar listasýningar og opnar sýningin Algleymi með verkum listakonunnar Gróu Dagmar nú á Vökudögum.

Í kennslurými safnsins má líta augum teikningar eftir Áslaugu Þorsteinsdóttur þar sem hún nýtir listina til að tjá hugsanir síðar á blaði og sýnir viðhorf sitt til lífsins og hversdagsleikans.

Dagskrá Micro-Bíó salar grunnsýningarinnar breytist einnig á meðan á hátíðinni stendur þar sem Þorri Líndal Guðnason sýnir videoverkið Hið blessaða Vélaverk í salnum.

Vökudagar hafa fært sérstakt líf í sögulegu húsin á safnasvæðinu og á sýningunni núna haustið 2026 bregður svo við að elstu hús safnsins – Garðahús, Sandar og Neðri-Sýrupartur eru undirlögð af lifandi samtímalist, mynd- og hljóðverkum sem skapa nýja upplilfun fyrir gesti.

Allt frá árinu 2023 hefur áhersla verið lögð á að bjóða listafólki að sýna verk sín í gömlu húsunum og þar sem þeim gefst kostur á að leggja samtímaverk sín ofan á núverandi sýningar húsanna. Þannig mætast samtíminn og saga svæðisins og fléttar saman menningararf bæjarbúa.

Hið sögufræga Garðahús, sem reist var árið 1876, hýsir glæsilega sýningu með verkum Herdísar Örnu Hallgrímsdóttur Í skugga flæðisins. Í Neðri-Sýruparti, sem er elsta varðveitta timburhús Akraness frá árinu 1875, er rýminu breytt í listasal þar sem gestir geta notið hljóðverka, innsetninga og málverka Heimis Snæs Sveinssonar með yfirskriftinni Dream of the Benzene Ring. Í alþýðuheimilinu Söndum má svo upplifa listasýninguna I miss my babies eftir Heklu Kristleifsdóttir, þar sem verk hennar skapa áhrifamikla stemningu í rýminu.

Þess má einnig geta að í sumar opnaði ný sýning í nýju bátahúsi sem stendur á safnasvæðinu. Til fiskiveiða fóru varpar ljósi á útgerðarsögu Akraness og Hvalfjarðarsveitar og byggist í kringum fjóra súðbyrta báta í eigu safnsins. Á listagöngunni verður þar boðið uppá lifandi tónlist

Með því að opna safnið fyrir myndlist, hönnun og leikræna viðburði myndast brú á milli fortíðar og nútíðar. Safnið hvetur alla hátíðargesti til að nýta opnun á Vökudögum, ganga á milli húsanna í hauströkkrinu og upplifa menningararfinn í nýstárlegu ljósi.

Opnunartími safnsins á Vökudögum 2026

Fimmtudagur 22. október kl. 18:00-21:00 - Listaganga
Föstudagur 23. október kl. 13:00-17:00
Laugardagur 24. október kl. 13:00-17:00
Sunnudagur 25. október kl. 13:00-17:00
Föstudagur 30. október kl. 13:00-17:00
Laugardagur 31. október kl. 13:00-17:00
Sunnudagur 1. nóvember kl. 13:00-17:00