
Kútter Sigurfari
Kútter Sigurfari er tvímælalaust eitt helsta tákn Safnasvæðisins, 86 smálesta eikarseglskip sem var smíðað árið 1885 í Englandi og notað við handfæraveiðar við Íslandsstrendur til ársins 1919, og síðan af Færeyingum til ársins 1970. Sigurfari þótti ágætt sjóskip, happasælt og var í mörg ár meðal aflahæstu þilskipa á Faxaflóasvæðinu. Skipið hefur verið fært í upprunalegt horf og er eini kútterinn sem hefur verið varðveittur úr fyrri tíðar þilskipastóli Íslendinga
Ástand Kútters Sigurfara er nú orðið mjög bágborið, svo slæmt í raun að hættulegt er orðið að fara um borð. Nú er því bannað að fara um borð í Kútterinn
Saga Kútters Sigurfara