Fróðá
Húsið Fróðá var byggt um 1935 og var upphaflega staðsett á lóð Akurs við Akursbraut á Akranesi en síðan flutt að Vesturgötu 11. Þar var það lengi vel notað undir ýmis konar iðnað og undir það síðasta sem beitingar- og geymsluhús í eigu Hafarnarins hf. Nafnið Fróðá festist við húsið er það stóð á lóð Akurs, en þangað komu sjómenn er þeir áttu leið um höfnina til þess að afla sér frétta.
Húsið var gefið Byggðasafninu í Görðum árið 1988 og flutt inn á Safnasvæðið í kjölfarið.
Garðar
Gamli prestbústaðurinn að Görðum, Garðahús, var fyrsta steinsteypta íbúðarhús af sinni gerð hér á landi, en það var byggt árið 1876. Húsið hefur verið fært í upprunalegt horf og er nú til sýnis ásamt ýmsum húsbúnaði sem prýddi rausnarheimili fyrri tíma.
Fyrir framan Garðahúsið er minnisvarði um sr. Jón M. Guðjónsson upphafsmann Byggðasafnsins í Görðum...
Meira...
Geirsstaðir
Húsið Geirsstaðir var byggt árið 1903 af Sigurgeiri, föður Odds sterka af Skaganum. Húsið var fyrst íbúðarhús en síðar forskóli barna á Akranesi og gekk þá undir nafninu Háskólinn að Geirsstöðum. Geirsstaðir eru í endurbyggingu og því er húsið lokað almenningi.
Neðri Sýrupartur
Bærinn Neðri-Sýrupartur stóð áður á svo kölluðum Pörtum við Breiðargötu. Nafnið er líklega dregið af súrri lykt sem barst frá rotnandi þara í fjörunni. Neðri-Sýrupartur er frá árinu 1875 og er elsta varðveitta timburhúsið á Akranesi. Húsið var flutt á svæði Byggðasafnsins að Görðum haustið 1990 og hefur verið fært í upprunalegt horf. Guðmundur P. Bjarnason frá Neðri-Sýruparti gaf Byggðasafninu í Görðum húsið árið 1989 og var því komið fyrir á varanlegum stað norðan við Garðahúsið
Sandar
Húsið Sandar er alþýðuheimili frá árinu 1901, járnklætt timburhús á steinhlöðnum kjallara, ein hæð með portbyggðu risi og „trogþaki“.
Viðbyggingin (skúrinn) var endurreist við húsið árið 2001 og er nú notuð sem verkstæði Safnasvæðisins. Húsið hefur allt verið endurgert að utan, húsgrindin löguð, gluggar og dyrakarmur endursmíðaðir og allt bárujárn endurnýjað og málað. Verið er að gera við húsið að innan og áætlað að opna þar sýningu von bráðar.
Stúkuhús
Stúkuhúsið var upphaflega byggt sem hlaða og fjós árið 1916 og tilheyrði húseigninni Háteig. Stúkan Akurblóm sem starfaði á Akranesi 1887-2000 eignaðist húsið 1948 og endurgerði það fyrir sína starfsemi. Stúkuhúsið hefur í gegnum tíðina verið notað sem samkomuhús fyrir góðtemplararegluna á Akranesi en einnig voru ýmiss félagasamtök með sína starfsemi í húsinu ásamt því að fundir bæjarstjórnar Akraness voru haldnir þar á ákveðnu tímabili.
Hægt er að leigja Stúkuhúsið fyrir veislur, fundi eða aðrar uppákomur.