ForsíðaSöfninÞjónustaUpplýsingar
Prenta vefsíðu

Bátarnir á Safnasvæðinu

 

Stór hluti muna safnsins tengist sjómennsku enda Akranes oft nefnt Skipaskagi. Kútter Sigurfari er án efa einn veglegasti gripur safnsins.

 

 

Bjarmi SH 207

 

Súðbyrtur og hekkbyggður furu- og eikarþilfarsbátur, smíðaður árið 1961 af Kristjáni Nóa Kristjánssyni bátasmiði á Akureyri. Báturinn hét upphaflega Vinur EA 80, en síðan Bjarmi EA 760, Bjarmi SH 207 og síðast Bjarni SH 207. Hann var gerður út frá Dalvík árin 1961-1983 og síðan frá Akureyri og Rifi. Aðalmál bátsins eru: lengd 10.69 metrar, breidd 3.37 metrar, dýpt 1.16 metrar og hann er 9.06 brl. Hann var afskráður og gefinn Byggðasafninu í Görðum árið 1993 þar sem gert var við hann sumarið 1994.

Draupnir BA40

Opinn vélbátur smíðaður af Aðalsteini Aðalsteinssyni í Hvallátrum á Breiðafirði árið 1961. Þetta er skarsúðaður bátur úr eik og furu, með eina siglu. Framhlutinn er lotað stefni en afturhlutinn skutbjúgur. Aðalmál hans eru: lengd 10.67 metrar, breidd 3.55 metrar, dýpt 1.52 metrar og hann er 10.41 brl. Báturinn var tekinn af skrá árið 1976 vegna endurbóta en settur aftur á skrá árið 1980. Síðasti eigandi bátsins var Skúli Aðalsteinsson, Neskaupstað og gaf hann Byggðasafninu í Görðum bátinn til varðveislu árið 1995.

 

Sigursæll AK87

Skarsúðaður opinn vélbátur úr eik og furu, smíðaður á árunum 1954-1955 í Bátastöð Akraness af Inga Guðmonssyni, bátasmið. Aðalmál bátsins eru: lengd 10.20 metrar, breidd 2.75 metrar, dýpt 1.27 metrar og hann er 6.77 brl. Báturinn var alla tíð gerður út af eiganda hans, Einari Árnasyni, skipstjóra frá Sóleyjartungu á Akranesi. Báturinn var gefinn Byggðasafninu í Görðum árið 1995.

 

Síldin AK88

Mótorfiskibátur, smíðaður í Skipasmíðastöð Marellíusar Bernharðssonar á Ísafirði árið 1962. Þetta er dekkaður bátur með tveimur siglum og er framhlutinn bogmyndað stefni en afturhlutinn skutbjúgur. Þetta er súðbyrtur bátur úr eik og furu, lengd 8.83 metrar, breidd 2.95 metrar, dýpt 1.04 metrar og hann er 6.36 brl. Báturinn var skráður á Bolungarvík frá 1962-1977 sem Guðbjartur ÍS 121 en fékk síðar nafnið Sæbjörn ÍS 121 árið 1969. Hann var seldur til Akraness árið 1977 og gerður út þaðan til ársins 1994, er hann var afskráður og gefinn Byggðasafninu í Görðum. Á Akranesi var hann gerður út undir nöfnunum Síldin AK 88 (1977-1987), Sæþór AK 7 (1987-1992) og Auður II. (1992-1994).

 

Smári SI35

Súðbyrtur og opinn furu- og eikarbátur, smíðaður á Siglufirði árið 1957 af Kristjáni Sigurðssyni, bátasmið. Þetta er opinn vélbátur með eina siglu og er framhluti skipsins með lóðstefni og afturhlutinn sporbaugslagaður. Aðalmál bátsins eru: lengd 8.06 metrar, breidd 2.16 metrar, dýpt 1.01 metrar og hann er 4 brl. Bátur þessi hét upphaflega Jóhann Gunnlaugsson SI 75 en síðar Smári EA 135 og Stefanía ST 91. Hann var gerður út frá Siglufirði árin 1957-1983, Akureyri árin 1983-1991 og Hólmavík árin 1991-1994. Árið 1994 fékk Ríkissjónvarpið bátinn til afnota við gerð sjónvarpsmyndar sem tekin var sumarið 1994 við Arnarstapa á Snæfellsnesi. Að lokinni myndatöku var Byggðasafninu í Görðum gefinn báturinn og kom hann til safnsins í september árið 1994.

 

Sæljón AK24

Opinn vélbátur sem var smíðaður árið 1954 í Bátastöð Akraness af Inga Guðmonssyni bátasmið. Hann er með eina siglu og hallandi stefni en að aftan skutbjúgur. Aðalmál bátsins eru: lengd 9.68 metrar, breidd 2.59 metrar, dýpt 1.10 metrar og er hann 5.23 brl. Báturinn var lengst af í eigu Magnúsar Vilhjálmssonar, sjómanns frá Efstabæ á Akranesi. Síðasti eigandi var Karl Hallbertsson á Akranesi og gerði hann bátinn út frá Ströndum. Karl gaf safninu bátinn til varðveislu árið 1999. Báturinn hefur verið endurgerður og er nú til sýnis á Safnasvæðinu.

 
Safnasvæðið á Akranesi | Görðum | 300 Akranes | Sími 431 5566 | museum@museum.is