Innan Steinaríkis Íslands er sýning tileinkuð gerð Hvalfjarðarganganna. Meðal sýningarmuna eru ljósmyndir frá framkvæmdunum, borar og borkjarnar, stórt líkan sem sýnir legu ganganna undir fjörðinn og síðast en ekki síst steintegundir sem fundust við gerð ganganna.
Hvalfjarðargöngin eru tvímælalaust mesta samgöngubót á Íslandi frá því að hringvegurinn opnaði árið 1974 og í raun söguleg framkvæmd í margvíslegum skilningi. Þetta eru til að mynda fyrstu neðansjávargöng veraldar sem gerð eru í ungu basalti á virku jarðhitasvæði. Davíð Oddson, þáverandi forsætisráðherra, opnaði Hvalfjarðargöngin formlega laugardaginn 11.júlí 1998 að viðstöddum hundruðum innlendra og erlendra gesta.
Frekari upplýsingar um Hvalfjarðargöng má finna á vef Spalar: www.spolur.is