ForsíðaSöfninÞjónustaUpplýsingar
Prenta vefsíðu

Heimsóknir hópa

Eitt af helstu verkefnum Safnasvæðisins felst í fræðslu. Þessu hlutverki er sinnt með móttöku skólahópa af öllum skólastigum, bæði innlendum og erlendum. Leiðsögumaður fer þá með hópinn um svæðið og talar um lifnaðarhætti fyrri tíma, íþróttir, jarðfræði og annað sem tengist munum safnsins og starfssemi auk sögu Íslands, Akraness og nærsveita.

Einnig er tekið er á móti öðrum hópum sem heimsækja vilja safnið. Möguleiki er á að útbúa skemmtilega og fræðandi dagskrá þar sem tvinnað er saman fræðslu sem tengist safninu og ýmsum leikjum og þrautum. Svona heimsókn er tilvalin til þess að auka þekkingu, skemmta fólki og byggja upp liðsheild í léttu og skemmtilegu andrúmslofti. Þessi ferð getur einnig verið hluti af árshátíð, starfsmannadögum eða öðrum atburðum hjá fyrirtækjum, félagasamtökum eða öðrum hópum.

Vinsamlegast hafið samband við starfsfólk til að fá frekari upplýsingar eða til að skipuleggja dagskrá fyrir hópinn í síma 431 5566 eða með tölvupósti á museum@museum.is

 

 

 

 

 

 

 

 
Safnasvæðið á Akranesi | Görðum | 300 Akranes | Sími 431 5566 | museum@museum.is