Garðakaffi, er staðsett í Safnaskálanum en þar er veitingaaðstaða fyrir 60 manns. Þar er boðið upp á ljúffengar veitingar gómsætt heimagert bakkelsi öl, gos, kaffi o.fl. Tilvalið fyrir ýmsa hópa að og gæða sér á ljúffengum veitingum að lokinni safnaheimsókn. Gott væri að þið létuð vita með fyrirvara ef von er á stórum hópi svo að nóg verði til fyrir alla.
Í Safnaskálanum og Garðakaffi, er búnaður fyrir þráðlaust net og því ekkert því til fyrirstöðu að mæta með fartölvuna og vafra um veraldarvefinn um leið og sopið er á ljúffengum drykk og nartað í dásamlegt bakkelsi.
Garðakaffi hefur sama opnunartíma og Safnasvæðið en yfir vetrartímann (frá 1. sept - 31. maí) er lokað á mánudögum. Hægt er að semja við rekstraraðila um leigu á salnum utan opnunartíma.
Varðandi veitingasölu og leigu á salnum í Garðakaffi er best að hafa samband við rekstraraðila Garðakaffis. Rekstraraðili er Mango ehf og hægt er að hafa samband við Marie í síma 864 6659 eða 431 5566