Í Safnaskálanum er sýningarsalur þar sem ýmsar listasýningar eru settar upp. Hafirðu áhuga á að halda sýningu í salnum skaltu hafa samband við starfsfólk Safnasvæðisins í síma 431 5566 eða með tölvupósi á museum@museum.is
Veggir Garðakaffis eru einnig nýttir undir sýningar á bæði málverkum og ljósmyndum, hafið samband við starfsfólk kaffihússins í síma 431 5566 ef frekari upplýsinga er óskað.
Myndasýning: Akranes um aldamótin 1900. Sýningin verður opnuð 10. desember og stendur fram í janúar.
Ljósmyndasýning: Í ýmsu ljósi, Björn Lúðvíksson.
Björn er fæddur og uppalinn á Akranesi og hefur hann tekið ljósmyndir frá ungaaldri en ljósmyndadellan hefu ágerst verulega síðustu 5 árin. Björn er meðlimur í Ljósmyndaklúbbi Akraness (www.vitinn.net).
Hægt er að sjá ljósmyndir og málverk Björns á vefsíðu hans www.flickr.com/bjossilu