Steinaríki Íslands er eitt stærsta steinasafn landins undir einu þaki og hefur að geyma fjölbreytt og glæsilegt safn íslenskra steina. Steinarnir skipta þúsundum og koma frá öllum landshlutum. Margir þeirra eru sagaðir og slípaðir en innan safnsins er auk þess að finna fjölda athyglisverðra steingervinga.
Steinaríkið er einstakur ævintýraheimur fyrir unga sem aldna til skemmtunar og fróðleiks. Safnið er einnig kjörinn staður til kennslu í jarðfræði og bergfræði fyrir nemendur á öllum skólastigum. Þess ber að geta að gestum og gangandi er leyfilegt að handfjatla flesta steinana en það þykir sérstætt í samanburði við steinasöfn erlendis.