ForsíðaSöfninÞjónustaUpplýsingar
Prenta vefsíðu

Safnasvæðið

 

Á undanförnum árum hafa verið tekin til sýningar á Safnasvæðinu nokkur hús sem byggð voru í lok 19.aldar og í byrjun 20.aldar.Gamli prestsbústaðurinn að Görðum eða Garðahúsið (frá 1876) er fyrsta steinsteypta íbúðarhúsið af sinni gerð sem byggt var hérlendis og jafnvel það elsta á Norðurlöndum. Í nokkrum húsanna er að finna fjöldan allan af áhugaverðum munum og tækjum frá fyrri tíð og hafa aðstandendur svæðisins með reglulegum viðgerðum reynt að halda húsunum sem næst sínu upprunalega horfi. Enn er unnið að uppsetningu sýninga í sumum húsanna og eru þau því ekki opin almenningi.

 

Útisvæði Safnasvæðisins hefur að geyma margvíslegar aðrarsögulegar gersemar: báta frá því fyrir og um aldarmótin 1900 og síðar, bátaskýli frá byrjun 20.aldar, fiskhjall að upplagi frá 19.öld, endurgerð af hákarlahjalli frá Ströndum, gamla brunninn að Görðum, bryggjusvæðið og vörðu Landmælinga Íslands sem er eftirlíking af vörðu sem hlaðin var í Skarðsheiði við lok 19.aldar.

Mesta athygli vekur Kútter Sigurfari sem er eini kútterinn sem varðveittur er á Íslandi; velegur minnisvarði um merkilegan kafla í skipa- og útgerðarsögu Íslands, skútuöldina. Sigurfari er orðinn einskonar tákn Akraness þar sem hann stendur og ber við Akrafjallið þegar komið er að Safnasvæðinu. Þar má einnig finna vísi að bátasafni sem liggur við bryggju.

 

 
Safnasvæðið á Akranesi | Görðum | 300 Akranes | Sími 431 5566 | museum@museum.is