Íþróttasafn Íslands er að finna í Safnaskálanum. Þetta er sýning um sögu íþrótta á Íslandi frá fyrstu tíð og er þetta fyrsta og eina sýning sinnar tegundar hér á landi. Íþróttasafnið var fyrst opnað vorið 2002 af tveim þekktustu íþróttamönnum landsins frá fyrri tíð, þeim Vilhjálmi Einarssyni og Ríkharði Jónssyni.
Ásamt því að segja sögu íþrótta eru allar viðurkenndar íþróttagreinar kynntar, mörgum helstu afreksmönnum íslenskra íþrótta gerð skil og fjöldi íþróttamuna er þar til sýnis, svo sem búningar, ljósmyndir, fánar og ýmisskonar íþróttabúnaður sem tengst hefur íþróttaiðkun með einum eða öðrum hætti. Hluti sýningarinnar er tileinkaður íþróttaiðkun á Akranesi sérstaklega, enda eru menn á eitt sáttir um að ef minnst er á Akranes er sjaldan langt í umræðu um íþróttir.