ForsíðaSöfninÞjónustaUpplýsingar
Prenta vefsíðu
8. desember 2011

Aðventuhátíð á Safnasvæðinu og nýtt útlit á vefnum

Laugardaginn 10. desember verður haldin aðventuhátíð á Safnasvæðinu á Akranesi. Margt verður um að vera, ljósmyndasýning, leikrit og kórsöngur.

 

 

Opnuð verður sýning með ljósmyndum frá Akranesi frá því um aldamótin 1900. Myndirnar hafa verið fengnar frá Ljósmyndasafni Akraness, Haraldarhúsi og frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Einnig voru fengnar myndir frá Cornell háskóla sem ekki hafa verið aðgengilegar almenningi áður. Ljósmyndasýningin er styrkt af Menningarráði Vesturlands.

Á laugardaginn verður einnig boðið upp á skemmtilega fjölskyldudagskrá á Safnasvæðinu. Jólaleikrit verður sýnt þar sem Grýla og jólasveinn koma fram og ómögulegt að segja hverju þau koma til með að taka uppá. Þá mun kór nemenda á miðstigi í Grundaskóla syngja nokkur lög undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. Skagaleikflokkurinn mun síðan flytja jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum á skemmtilegan hátt.

Vefur Safnasvæðisins www.museum.is hefur á undanförnum vikum fengið ákveðna yfirhalningu sem mun líta dagsins ljós á laugardag. Vefurinn mun þá breytast til hins betra og verður í takt við aðra vefi Akraneskaupstaðar, auk þess sem þar verða nýjar myndir og uppfærðar upplýsingar á íslensku, ensku og þýsku.

Að vanda verður úrval girnilegra veitinga á Garðakaffi. Allir eru hvattir til að nýta tækifærið til að heimsækja Safnasvæðið og eiga ánægjulega samverustund með fjölskyldu og vinum á aðventunni. 

 
Safnasvæðið á Akranesi | Görðum | 300 Akranes | Sími 431 5566 | museum@museum.is