15. maí 2013
Námskeið verður haldið í eldsmíði á Safnasvæðinu á Akranesi, dagana 31. maí kl 16-19 og 1. júní kl 9-12. Samtals 6 stundir.Kennd verða grunnatriði í eldsmíði.Nemendur taki með sér hlífðarfatnað (góða svuntu, hlífðargleraugu og heyrnarskjól).Efni og aðstaða auk molakaffis innifalið.Verð kr. 12.000Skráning á museum@museum.is
10. maí 2013
Vegna forfalla er sýningarsalurinn í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi laus í júní. Salurinn er mjög rúmgóður og vel upp lýstur, 140 m²með um 65 m veggjaplássi en veggirnir eru um 270 cm háir.
Nánari upplýsingar hjá Önnu Leif í síma 4315566 eða á museum@museum.is
29. apríl 2013
HAFIÐ, FJARAN OG FÓLKIÐ menningararfleifð og tækifæri sjávarbyggða10:00-12:00 Tónleikar, ljósmynda- og myndlistasýning í AkranesvitaBirta Ísleifsdóttir 11 ára söngkona syngur nokkur lögHanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran syngur við undirleikErna Hafnes sýnir olíumálverkÁhugamannaljósmyndarafélagið Vitinn sýnir ljósmyndirHægt verður að njóta útsýnisins af svölum vitans og fræðast um starfsemina í vitanum12:00-12:45 Hádegishlé, hægt verður að kaupa súpu, salat og brauð í GarðakaffiDagskrá í Garðakaffi:
12:45-12:50 Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri ávarpar samkomuna12:50-13:15 Auður við íslenska strönd. Kynning á Íslenska vitafélaginu - félagi um íslenska strandmenningu og verkefninu Fishernet: Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins og verkefnastjóri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar13:15-13:45 Tengsl Akranessvæðisins við landnám Grænlands og Nýfundnalands: Þorvaldur Friðriksson, fréttamaður13:45-14:15 Kútter Sigurfari – saga hans og framtíð: Jón Allansson forstöðumaður Byggðasafnsins í Görðum14:15-14:45 Vitar Akraness: Hilmar Sigvaldason, áhugamaður um nýtingu og vaðveislu vita
25. mars 2013
Opið verður um páskana sem hér segir:
Skírdagur opið 13:00-17:00
Föstudagurinn langi lokað
Laugardagurinn 30. mars opið 13:00-17:00
Páskadagur lokað
Annar í páskum opið 13:00-17:00
Verið velkomin!
7. mars 2013
Í mörg ár hef ég haft ánægju af því að leiðbeina fólki sem sótt hefur námskeið hjá mér í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Í gegnum þennan hóp hef ég kynnst gleði og ákveðnu áreynsluleysi við gerð verkefna sem birtist mér sem hvatning til að við sýndum verk okkar saman. Hugmyndin var að mála klassískt þema, hús og fjall, í anda gömlu meistaranna. Snemma í haust heimsóttum við Safnasvæðið á Akranesi, tókum myndir af svæðinu, húsum bæjarins, fórum upp í Akranesvita, sungum og nutum útsýnisins. Það besta við að skapa með hópi sem er svona samstilltur er að við leggjum af stað með ákveðna hugmynd sem umbreytist í eitthvað annað í vinnslunni. Í framhaldi af ákveðinni undirbúningsvinnu var ákveðið að halda inn á ókortlagðar lendur og búa til okkar eigin bæ. Í stað þess að áhorfandinn geti séð sitt hús við ákveðna götu ákváðum við að gangast við eigin sýn þar sem allt er í upplausn og skapa nýja byggð úr húsum sem eru, voru einu sinni eða vildum að væru á Akranesi. Hlíf Ásgrímsdóttir.
26. febrúar 2013
Yfirlitssýning á verkum nemenda í 10. bekk Grundaskóla verður opnuð laugardaginn 2. mars kl. 14:00.
Sýningin stendur yfir til sunnudagisins 24. mars.
Opnunartími er kl. 13:00 – 17:00 alla daga og er frítt inn á sýninguna.
4. febrúar 2013
Handverkssýningu Sigrúnar Níelsdóttur lauk sunnudaginn 27. janúar.
Sigrúnu og aðstandendum sýningarinnar er efst í huga þakklæti til allra þeirra sem gerðu það mögulegt að setja upp svona glæsilega sýningu með því að lána til þess það sem til þurfti.
Ámilli fimm og sexhundruð manns sótti sýninguna og kunnum við þeim okkar bestu þakkir fyrir.