Neðri-Sýrupartur

 

Bærinn Neðri-Sýrupartur stóð áður á svo kölluðum Pörtum við Breiðargötu. Nafnið er líklega dregið af súrri lykt sem barst frá rotnandi þara í fjörunni. Neðri-Sýrupartur er frá árinu 1875 og er elsta varðveitta timburhúsið á Akranesi. Húsið var flutt á svæði Byggðasafnsins að Görðum haustið 1990 og hefur verið fært í upprunalegt horf. Guðmundur P. Bjarnason frá Neðri-Sýruparti gaf Byggðasafni Akraness og nærsveita húsið árið 1989 og var því komið fyrir á varanlegum stað norðan við Garðahúsið.